Djúpa ríkið hefur átt í vörn að verjast eftir að Trump var kosinn forseti undir þeim merkjum að „Make Amerika Great Again“. Undanfarin þrjú ár hefur Trump átt fullt í fangi að taka á embættismönnum sem enginn hefur kosið til að taka ákvarðanir. Hefur mótþrói djúpa ríkisins gengið svo langt að sumir segja að um Coup d’état sé að ræða.
![](https://b1355799.smushcdn.com/1355799/wp-content/uploads/2019/11/Coup-détat.jpg?lossy=2&strip=1&webp=1)
Nú hefur íslenska valdstjórnin all tíð verið í nánu sambandi við USA og því er um sama ástand að ræða á Íslandi og hugsanlega verra. Það er ekki tilvilun að valdstjórnin heldur völdum í áratugi á sama tíma og sama kjörstjórnin hefur setið í yfir 20 ár og kosið er með býöntum.
Nú hefur Trump heilsað mikið uppá kollega sinn í Tyrklandi og það er áhugavert að velta þeirri hugsun upp hvort hann sé að sækja ráð vega aðgerða sem Tyrkland framkvæmdi 2016 til að hreins sitt djúpa ríki ( sjá hér ).
Þegar embættismenn, fjármálakerfið og fjölmiðlar bindast saman böndum er erfitt að slíta það og í raun stórhættulegt að hreyfa við þeim ósköpum. Embættismenn djúpa ríkisins í USA hafa sjálfir sagt að réttast væri að ráða Trump af dögum og þar á meðal æðstu forstjórar CIA sem hafa sennilega verið þeir sem myrtu John F. Kennedy forseta. Sumir vilja meira að segja fara aftar í sögunni og segja að Abraham Lincoln hafi verið myrtur af sömu öflum.
Það er í raun einhverskonar samsuða af leyniþjónustum heimsins, stjornmálamanna og fyrirtækja sem stjórna heiminum. Sumir segja að einginn verði forseti nema leyniþjónustan samþykki viðkomandi fyrst.