Í framhaldi af heilum faraldi af bílslysum hefur valdstjórnin ákveðið að loka alla heima hjá sér. Þetta er samkvæmt ráðgjöf WHO hljómsveitarinnar sem eru sérfræðingar í að ferðast með rútum þar sem flestir eru undir annarlegum áhrifum.
Valdstjórnin hefur jafnframt ákveðið að þeir sem deyja vegna annara orsaka eins og hjartaáfalls, leiðinda, sjálfsmorða, fallhífastökks, að hlusta á þríeykið eða bara hverju sem er verðu skráð sem dauði vegna bílslysa.
![](https://b1355799.smushcdn.com/1355799/wp-content/uploads/2020/06/car-pile-up.jpg?lossy=2&strip=1&webp=1)
Til að bregaðst við fjárhagshruni sem fylgir þessum neyðaraðgerðum verður reddað með lánum frá Rauðskildi&co sem munu á endanum eiga allt draslið.